


Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (e. The Sustainable Development Goals) voru samþykkt af öllum 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna árið 2015 og gilda til ársins 2030.
Heimsmarkmiðin eru 17 talsins og þeim fylgja 169 undirmarkmið. Löndin hafa skuldbundið sig til að vinna að þeim bæði innanlands og í alþjóða samstarfi. Öll markmiðin hafa áhrif á hvort annað þannig að þegar þú vinnur að einu þeirra styður þú við þau öll.
Takist þjóðum heimsins að ná markmiðunum fyrir árið 2030 mun líf allra jarðabúa og ástand umhverfisins batna til muna. Þau eru besta áætlun í heimi til að útrýma fáttækt, draga úr ójöfnuði og takast á við loftslagsbreytingar.
Eitt af heimsmarkmiðunum, númer 12, snýr að ábyrgri neyslu og framleiðslu. Þetta er það markmið sem Ísland og hinar Norðurlanda þjóðrinar standa sig einna verst. Markmiðið snýr að sjálfbærri neyslu og framleiðslu, það er að við séum ekki að ganga á umhverfið eða á mannréttindi annara með neyslu okkar eða framleiðslu. Markmið 12 er þá líka með undirmarkmið þar sem fyrirtæki eru hvött til þess að innleiða sjálfbæra þróun í starfsemi sína og til að veita upplýsingar um framleiðsluferli sitt. Með því að vinna að markmiði 12 og sýna ábyrgð í neyslu og framleiðslu vinnum við að öllum heimsmarkmiðunum sem heild, það er vinnum að útrýmingu fáttæktar, eyðum hungri og hindrum loftslagsbreytingar.
Þegar við veljum sjálfbær föt vinnum við að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Nánari upplýsingar: www.heimsmarkmidin.is og www.un.is



ABOUT SKYLINE
I'm a paragraph. Click here to add your own text and edit me. It’s easy. Just click “Edit Text” or double click me to add your own content and make changes to the font. I’m a great place for you to tell a story and let your users know a little more about you.